Persónuverndarstefna SPROTA
SPROTI leggur áherslu á að fara vel með þær persónuupplýsingar sem félaginu eru veittar í gegnum vefinn.
Hvaða upplýsingum er safnað?
Þegar þú sendir fyrirspurn, umsókn um styrk eða fyrirspurn um styrktarsamstarf safnar SPROTI þeim upplýsingum sem þú skráir sjálf/ur í viðkomandi form, til dæmis nafni, netfangi, símanúmeri og efni erindisins.
Umsóknir ungra knapa geta einnig innihaldið upplýsingar um aldur, hestamannafélag, reynslu og upplýsingar um forráðamann.
Í hvað eru upplýsingarnar notaðar?
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara erindum, meta umsóknir um styrki og halda utan um samstarf við styrktaraðila.
Upplýsingar eru ekki seldar eða afhentar þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Varðveisla
Upplýsingar eru varðveittar í öruggu gagnasafni og aðeins aðgengilegar þeim sem sinna störfum fyrir SPROTA. Þeim er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf vegna tilgangs vinnslunnar eða vegna bókhaldsskyldu.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þau gögn sem SPROTI varðveitir um þig, láta leiðrétta þau eða óska eftir eyðingu þeirra.
Sendu erindi á info@sprotihestar.is og við bregðumst við eins fljótt og auðið er.
Vefkökur
Vefur SPROTA notar ekki vefkökur í markaðslegum tilgangi eða til að rekja hegðun notenda milli vefsvæða.
Ábyrgðaraðili vinnslu: SPROTI, kt. 600326-0740, info@sprotihestar.is, sími 787-9050.
